EN

Anna, Sibelius og Tsjajkovskíj ­

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
14. apr. 2023 » 19:30 » Föstudagur Eldborg | Harpa 2.900 - 8.700 kr.
Tónleikakynning » 14. apr. kl. 18:00 — Hörpuhorn

Á þessum síðustu tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg fyrir tónleikferð sína um Bretland má segja að kosmískir kraftar leysist úr læðingi. Á fyrri hluta tónleikanna hljóma bæði margrómað hljómsveitarverk Önnu Þorvaldsdóttur, METACOSMOS, sem hljómað hefur af sviðinu hjá mörgum af helstu sinfóníuhljómsveitum heims, og hið óvenjulega meistaraverk Sibeliusar, Luonnotar, en það er samið við erindi úr þjóðkvæðabálkinum Kalevala þar sem segir frá sköpun heimsins. Gyðjan Luonnotar stígur niður úr híbýlum guðanna og skapar jörðina og himnana.

Einsöngvari í tónaljóði Sibeliusar er finnska sópransöngkonan Anu Komsi. Hún hefur hlotið mikið lof fyrir raddfegurð sína, feikilega tækni og frumleg tök, jafnt á hefðbundnum söngperlum og framsækinni samtímatónlist. Í upphafi tónleikanna hljómar einskonar konsert fyrir kólóratúr-sópran, Voice verser, sem finnska samtímatónskáldið Jukka Tiensuu samdi fyrir Komsi. Verkið er óður án orða til raddarinnar og möguleika hennar – tónmálið er frumlegt, framandi og fullt af glettni.

Tónleikunum lýkur á einu af öndvegisverkum Tsjajkovskíjs, fimmtu sinfóníunni, sem hann samdi á hátindi ferils síns, skömmu áður en hann hófst handa við ballettinn um Þyrnirós. Verkið hefur hrifið hlustendur allt frá fyrsta degi. Jafnvel Johannes Brahms, sem lét sér annars fátt um finnast þegar kom að tónlist Tsjajkovskíjs, heyrði tónskáldið stjórna sinfóníunni í Hamborg árið 1889 og gat ekki annað en játað að hún væri framúrskarandi tónsmíð.

*Tónleikarnir eru u.þ.b. tvær klst. með tuttugu mínútna hléi.

Sækja tónleikaskrá