EN

Aðventutónleikar

Bach og Mozart

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
7. des. 2017 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 2.500 - 7.500 kr.
  • Efnisskrá

    J. S. Bach Hljómsveitarsvíta nr. 3 í D-dúr
    W. A. Mozart Exsultate, jubilate
    W. A. Mozart Così fan tutte, forleikur
    W. A. Mozart Porgi amor, úr Brúðkaupi Fígarós
    W. A. Mozart Martern aller Arten, úr Brottnáminu úr kvennabúrinu
    W. A. Mozart Sinfónía nr. 31

  • Hljómsveitarstjóri

    Jonathan Cohen

  • Einsöngvari

    Sally Matthews

Tónleikakynning » 7. des. kl. 18:00

Sally Matthews er ein eftirsóttasta sópransöngkona heims en hún er einnig „tengdadóttir Íslands“ því að eiginmaður hennar er Finnur Bjarnason söngvari. Hún hefur meðal annars sungið á tónlistarhátíðinni í Salzburg, við Covent Garden og Vínaróperuna, með Berlínarfílharmóníunni undir stjórn Simons Rattle, og í haust stígur hún í fyrsta sinn á svið Metropolitan-óperunnar í New York. 

Sally hefur silkimjúka sópranrödd sem hentar tónlist Mozarts fullkomlega enda hefur hún hlotið mikið lof gagnrýnenda einmitt fyrir flutning sinn á Mozart. 

Á Aðventutónleikum Sinfóníunnar syngur Sally tvær frægar aríur Mozarts, m.a. aríu greifynjunnar úr Brúðkaupi Fígarós, en einnig hið sívinsæla Exsultate, jubilate sem er eins konar konsert fyrir sópranrödd.

Jonathan Cohen er einn fremsti barokkstjórnandi Bretlands af yngri kynslóðinni. Hann stýrir sinni eigin hljómsveit, Arcangelo, sem hefur m.a. hljóðritað Messu í h-moll eftir Bach og hlotið frábæra dóma. Á Aðventutónleikum Sinfóníunnar stjórnar hann Parísarsinfóníunni svonefndu eftir Mozart auk hljómsveitarsvítu Bachs nr. 3, þeirri sem hefur að geyma hina ægifögru „Aríu á G-streng“. 

Sækja tónleikaskrá