EN

Bartók og Beethoven

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
9. nóv. 2023 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 3.000 - 9.200 kr.
Kaupa miða
  • Efnisskrá

    Veronique Vaka Inmost (heimsfrumflutningur)
    Béla Bartók Fiðlukonsert nr. 2
    Ludwig van Beethoven Sinfónía nr. 3

  • Hljómsveitarstjóri

    Eva Ollikainen

  • Einleikari

    Leila Josefowicz

Tónleikakynning » 9. nóv. kl. 18:00

Fiðlukonsert Béla Bartóks er eitt af stórvirkjum 20. aldarinnar fyrir hljóðfærið. Hann var saminn árið 1938, þegar tónskáldið var niðurbrotið yfir uppgangi fasismans í Ungverjalandi og þeim þjóðernisofsóknum og ofbeldi sem honum fylgdu. Hafa margir túlkað verkið sem einskonar hinstu kveðju Bartóks til ættjarðarinnar en skömmu eftir að hann lauk við konsertinn flúði hann ásamt konu sinni til Bandaríkjanna og auðnaðist þeim aldrei að snúa aftur heim. Verkið er þrungið sterkum tilfinningum og uppfullt af vísunum í þjóðlagaarfinn sem Bartók hafði rannsakað á ferðum sínum um sveitir Ungverjalands í upphafi tuttugustu aldarinnar.

Hetjuhljómkviða Ludwigs van Beethoven er eitt af tímamótaverkum tónlistarsögunnar. Með henni markaði Beethoven nýja og áður óþekkta braut í skrifum fyrir sinfóníuhljómsveit og gætir áhrifanna enn í dag. Innblásturinn að verkinu mun hafa verið sjálfur Napóleón, en þegar hann krýndi sig keisara dró Beethoven tileinkunnina til baka. Ímynd hetjunnar svífur þó greinilega yfir vötnum í verkinu, full af dirfsku og krafti. Í upphafi tónleikanna hljómar verk Veronique Vöku, Inmost, í fyrsta sinn á tónleikapalli, en verkið er samið fyrir Evu Ollikainen, aðalhljómsveitarstjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Fiðluleikarinn Leila Josefowicz er á meðal fremstu fiðluleik­ ara heims og hefur markað sér sérstöðu með flutningi helstu tónverka 20. og 21. aldar, auk þess sem hún tekur virkan þátt í frumsköpun nýrrar tónlistar með pöntunum og samstarfi við tónskáld úr ýmsum áttum. Josefowicz er staðarlistamaður hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands starfsárið 2023–24 og kemur tvisvar fram með sveitinni, auk þess sem hún leikur einleikstónleika í föstudagsröðinni í janúar næstkomandi.