EN

Sinfónían á Myrkum

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
26. jan. 2017 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 2.500 - 4.100 kr.

Tónleikar Sinfóníunnar á Myrkum músíkdögum eru vettvangur fyrir nýja og spennandi íslenska tónlist í bland við erlend meistaraverk. Hér hljómar nýr víólukonsert eftir Hauk Tómasson, saminn fyrir Þórunni Ósk Marínósdóttur sem er leiðandi víóluleikari SÍ og
meðal fremstu tónlistarmanna landsins. Einnig verður frumflutt nýtt hljómsveitarverk eftir Kristínu Þóru Haraldsdóttur en verk hennar, Water's Voice, vakti mikla eftirtekt á Tectonics-tónlistarhátíð SÍ árið 2015. Verk Úlfs Hanssonar var samið fyrir Fílharmóníuhljómsveit Franska útvarpsins í kjölfar þess að hann hlaut fyrstu verðlaun í flokki ungra tónskálda á Tónskáldaþinginu 2013. Doloroso eftir Atla Heimi Sveinsson er kyrrlátur huggunar- og saknaðarsöngur, og er tileinkað minningu Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur forsetafrúar.
Breska tónskáldið Thomas Adès er einn virtasti tónlistarmaður samtímans. Hið glæsilega hljómsveitarverk hans, Polaris, er samið árið 2010. Það ber undirtitilinn „ferðalag fyrir hljómsveit“ og er innblásið af Pólstjörnunni eins og heitið gefur til kynna. Einn gagnrýnandi sagði eftir frumflutninginn að það væri „yfirgengilega fagurt“ og eru það orð að sönnu. 


Vegna anna við tónsmíðar stjórnar Daníel Bjarnason ekki tónleikunum eins og upphaflega stóð til. Finnski stjórnandinn Petri Sakari mun stýra tónleikunm.

 

Sækja tónleikaskrá