Dagsetning | Staðsetning | Verð | ||
---|---|---|---|---|
18. feb. 2023 » 14:00 » Laugardagur | Eldborg | Harpa | 2.700 - 3.300 kr. | ||
18. feb. 2023 » 16:00 » Laugardagur | Eldborg | Harpa | 2.700 - 3.300 kr. | ||
Hlusta |
-
Efnisskrá
Wolfgang Amadeus Mozart Töfraflautan (í styttri gerð)
-
Hljómsveitarstjóri
-
Einsöngvarar
Hrafnhildur Árnadóttir Hafstað
Sveinn Dúa Hjörleifsson
Jóhann Kristinsson
Harpa Ósk Björnsdóttir
Bryndís Guðjónsdóttir
-
Sögumaður
Þórunn Arna Kristjánsdóttir
Töfraflautan eftir Mozart er ein dáðasta ópera sögunnar og sannkallaður ævintýraheimur fyrir unga sem aldna. Prinsinn Tamínó leggur af stað í leiðangur til að bjarga hinni fögru Pamínu, en smám saman kemur í ljós að móðir hennar, Næturdrottningin, sem sendi hann af stað, er ekki öll þar sem hún er séð. Til aðstoðar hefur prinsinn fuglaveiðara að nafni Papagenó. Sá er lítið fyrir háfleygar hugsanir en kann vel að meta góðan mat og drykk og vill helst af öllu finna sér sálufélaga. Að lokum fella Tamínó og Pamína hugi saman, en þurfa að leysa erfiðar þrautir áður en þau fá að eigast.
Hér er meistaraverk Mozarts flutt í klukkustundarlangri útfærslu fyrir sögumann og fimm einsöngvara, en með hlutverkin fara íslenskir söngvarar af yngri kynslóðinni. Öll hafa þau stundað framhaldsnám erlendis og hlotið frábæra dóma fyrir söng sinn og leik. Sögumaður er Þórunn Arna Kristjánsdóttir sem lýsir framvindunni með kímnigáfu að leiðarljósi. Þetta er hugljúf og eftirminnileg ævintýrastund fyrir alla fjölskylduna og er hluti af Litla tónsprotanum.
*Tónleikarnir eru u.þ.b. klukkustundarlangir án hlés.