EN

Klassíkin okkar: Tónlistarsagan þín

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
30. ágú. 2019 » 20:00 » Föstudagur Eldborg | Harpa 2.600 - 5.800 kr.
  • Efnisskrá

    Sergej Prokofíev Montag og Kapúlett úr Rómeó og Júlíu
    Giacomo Puccini Un bel dì vedremo úr Madama Butterfly
    Giacomo Puccini Che gelida manina úr La bohème
    Johannes Brahms Wie lieblich sind deine Wohnungen úr Þýskri sálumessu
    Edward Elgar Nimrod úr Enigma-tilbrigðunum
    Wolfgang Amadeus Mozart Sálumessa, valdir kaflar
    Johann Pachelbel Kanón
    Wolfgang Amadeus Mozart Klarínettkonsert, 2. kafli
    Georg Frederick Händel Hallelúja-kórinn úr Messíasi
    Samuel Barber Adagio fyrir strengi
    John Williams Schindler's List, meginstef
    John Adams Short Ride in a Fast Machine
    Pjotr Tsjajkovskíj Sinfónía nr. 4, lokakafli

  • Hljómsveitarstjóri

    Daníel Bjarnason

  • Einleikarar

    Arngunnur Árnadóttir
    Sigrún Eðvaldsdóttir

  • Einsöngvarar

    Elmar Gilbertsson
    Hallveig Rúnarsdóttir

  • Kórar

    Hljómeyki
    Mótettukór Hallgrímskirkju
    Söngsveitin Fílharmónía

  • Kórstjórar

    Magnús Ragnarsson, Hörður Áskelsson og Þorvaldur Örn Davíðsson

  • Kynnar

    Guðni Tómasson
    Halla Oddný Magnúsdóttir

Tónleikarnir Klassíkin okkar hafa vakið geysimikla athygli undanfarin ár og verða nú haldnir í fjórða sinn í samstarfi við RÚV. Í ár var kallað eftir sögum af því hvernig sígild tónverk hafa haft áhrif á Íslendinga, hvernig þau minna á merkilega atburði eða minnisstæðar manneskjur – nú eða bara lita hversdagslífið. Úrval þeirra verka sem tilnefnd eru verður flutt á sérstökum hátíðartónleikum í Eldborg sem um leið eru upptaktur að glæsilegu starfsári Sinfóníuhljómsveitarinnar.

Fjöldi tillagna barst í þetta sinn og verður efnisskráin með einkar fjölbreyttu móti. Verk úr einleikskonsertum, kórverkum og óperuaríur hljóma ásamt tilþrifamiklum hljómsveitarverkum og spannar efnisskráin allt frá barokktímanum til síðustu ára.

Meðal verkanna sem hljóma eru Kanón eftir Pachelbel, Hallelúja-kórinn úr Messíasi, þættir úr sálumessu Mozarts, Nimrod úr Enigma-tilbrigðum Elgars og aríur úr óperunum Madama Butterfly og La bohème eftir Puccini. Hljómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason en einnig kemur fram fjöldi einsöngvara, einleikara og kóra enda efnisskráin bæði fjölbreytt og sérlega glæsileg.

Tónleikarnir verða sýndir í beinni útsendingu vef RÚV.

Sækja tónleikaskrá