EN

Flekaskil

Myrkir músíkdagar

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
26. jan. 2023 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 2.900 - 4.900 kr.

Myrkir músíkdagar er ein elsta tónlistarhátíð landsins en Tónskáldafélag Íslands hefur haldið hana frá árinu 1980. Hinir árlegu tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands undir merkjum Myrkra músíkdaga eru langþráðir í þetta skiptið, enda setti heimsfaraldur strik í reikninginn síðustu tvö árin.

Fimm glæsileg og gagnólík verk eru á efnisskránni. Verk Hauks Tómassonar, Hún róar mig, endurtekningin, sækir innblástur í verk japönsku listakonunnar Yayoi Kusama, sem nýtur mikillar hylli fyrir litrík og þráhyggjukennd verk sín. Pons Papilloma eftir Ingibjörgu Ýr Skarphéðinsdóttur er samið að beiðni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og segir hún að það sé „úrvinnsla og kortlagning á áfalli“. 

Verk Áskels Mássonar, Capriccio, er samið fyrir darabuka, sem er bikartromma ættuð frá Tyrklandi og Austurlöndum nær, en Áskell hefur á löngum ferli þróað ákveðna leiktækni á trommuna og bregður sér hér í hlutverk einleikarans. Þess má geta að í verkinu hljómar einnig annað óvenjulegt hljóðfæri, alúfónn, en Sinfóníuhljómsveit Íslands áskotnaðist nýverið slíkt hljóðfæri að gjöf. Á tónleikunum hljómar einnig verk Gunnars Andreasar Kristinssonar, Flekar, sem tónskáldið segir að sé „samsett úr tónmössum sem mætast eða skarast líkt og jarðflekar, með tilheyrandi núningi og spennumyndun“. Hljómsveitarverk Kjartans Ólafssonar, Mar, er tileinkað minningu finnska tónskáldsins Einojuhani Rautavaara.

*Tónleikarnir eru u.þ.b. tvær klst. með tuttugu mínútna hléi.

Sækja tónleikaskrá