EN

17. janúar 2018

Alban Gerhardt heimsækir dvalarheimili og tónlistarskóla

Þýski sellóleikarinn Alban Gerhardt heimsótti heimilisfólk á dvalarheimilinu Þorraseli ásamt því að hann hélt námskeið fyrir tónlistarnemendur við LHÍ og MÍT í dag. Alban sinnir gjarnan fjölbreyttu samfélagsstarfi á tónleikaferðum sínum um heiminn og eru þessar heimsóknirnar liður í því góða starfi. Á fimmtudagskvöld leikur Alban Gerhardt einleik í sellókonsert nr. 1 eftir Shostakovitsj með Sinfóníuhljómsveit Íslands.