Ashkenazy dregur sig í hlé
Vladimir Ashkenazy, heiðursheiðursstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, hefur ákveðið að draga sig í hlé frá öllu tónleikahaldi. Þetta tilkynnti umboðsmaður hans, Jasper Parrott, síðastliðinn föstudag. Ashkenazy, sem er 82 ára, hefur verið meðal fremstu tónlistarmanna heims í meira en hálfa öld. Hann vakti fyrst alþjóðlega athygli þegar hann hlaut önnur verðlaun í Chopin-keppninni í Varsjá árið 1955, og hann hreppti síðan fyrstu verðlaun í Queen Elisabeth-keppninni í Brussel 1956 og Tsjajkovskíj-keppninni í Moskvu 1962. Allar götur síðan hefur hann ferðast heimshorna á milli ásamt eiginkonu sinni, Þórunni Jóhannsdóttur, og haldið tónleika ásamt fremsta tónlistarfólki heims.
Ashkenazy á að baki glæsilegan feril í hljóðverinu, en hann hefur verið samningsbundinn útgáfuforlaginu Decca frá árinu 1963. Fáir samtímamenn hafa hljóðritað eins margar plötur sem hann, bæði sem píanóleikari og hljómsveitarstjóri. Ashkenazy hefur hlotið sjö Grammy-verðlaun, m.a. sem besti einleikari með hljómsveit (píanókonsertar Beethovens með Georg Solti, 1974), fyrir bestu kammerhljóðritun (fiðlusónötur Beethovens með Itzhak Perlman, 1979), og besta einleiksdisk (prelúdíur og fúgur Shostakovitsj, 2000). Ashkenazy hefur verið aðalstjórnandi virtra hljómsveita á borð við Konunglegu fílharmóníusveitina í London, auk þess sem hann var um skeið aðalgestastjórnandi Cleveland-hljómsveitarinnar í Bandaríkjunum.
Samstarf Ashkenazys og Sinfóníuhljómsveitar Íslands spannar meira en hálfa öld. Hann kom fyrst fram með hljómsveitinni árið 1964 í píanókonserti nr. 3 eftir Rakhmanínov, og stjórnaði henni í fyrsta sinn árið 1971, í píanókonserti eftir Mozart með Daniel Barenboim í einleikshlutverki. Hann hefur verið heiðursstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá árinu 2002 og hefur stjórnað henni í mörgum meistaraverkum tónbókmenntanna, meðal annars Stríðssálumessu Brittens, Das Lied von der Erde eftir Mahler, og Níundu sinfóníunni og Missa solemnis eftir Beethoven. Þá flutti hann allar sinfóníur Brahms með hljómsveitinni í sérstökum „Brahms-hring“ á árunum 2014–17. Ashkenazy gegndi lykilhlutverki í því að hvetja ráðamenn til byggingar tónlistarhúss í Reykjavík og stjórnaði opnunartónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu vorið 2011. Síðast kom hann fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tólf tónleikum í Japan í nóvember 2018. Ashkenazy var sæmdur stórkrossi hinnar íslensku fálkaorðu af forseta Íslands í apríl 2018 fyrir framlag sitt til íslensks tónlistar- og menningarlífs.
Frá tónleikaferð Sinfóníuhljómsveitar Íslands þar sem hljómsveitin lék
á 12 tónleikum víðsvegar um Japan undir stjórn Vladimir Ashkenazy
Á þessum tímamótum er hljóðfæraleikurum og starfsfólki Sinfóníuhljómsveitar Íslands efst í huga þakklæti fyrir allt það óeigingjarna starf sem Vladimir Ashkenazy hefur unnið í þágu íslensks tónlistarlífs. Hann hefur verið óþreytandi talsmaður hljómsveitarinnar á alþjóðlegum vettvangi, fengið til samstarfs við hana tónlistarfólk á heimsmælikvarða og unnið að framgangi hennar með hljóðritunum og nú síðast í viðamikilli tónleikaferð til Japans. Ashkenazy er einstakur listamaður, hógvær og lítillátur en um leið vandvirkur og djúpur í list sinni, vinur menningar og mennsku í öllum sínum birtingarmyndum. Við óskum honum og Þórunni alls hins besta á komandi árum með innilegu þakklæti fyrir ómetanlegt samstarf,
segir Lára Sóley Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
- Eldri frétt
- Næsta frétt