EN

16. maí 2018

Bjarni Frímann ráðinn aðstoðarhljómsveitarstjóri SÍ

Bjarni Frímann Bjarnason hefur verið ráðinn aðstoðarhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands til tveggja ára, frá og með næsta starfsári. Sem aðstoðarhljómsveitarstjóri mun Bjarni Frímann gegna veigamiklu og fjölþættu hlutverki hjá hljómsveitinni og taka að sér stór og minni verkefni, fyrst og fremst á stjórnendapallinum, en líka í öðru listrænu starfi hljómsveitarinnar og tekur til að mynda sæti í verkefnavalsnefnd hljómsveitarinnar.

Frá árinu 2018 hefur Bjarni Frímann einnig gegnt stöðu tónlistarstjóra hjá Íslensku óperunni og var tilnefndur sem tónlistarflytjandi ársins sama ár á Íslensku tónlistarverðlaununum fyrir hljómsveitarstjórn í uppfærslu Íslensku óperunnar á Toscu eftir Giacomo Pucc­ini.

Í þessari viku stjórnar Bjarni Frímann hljómsveitinni í Stríði eftir Ragnar Kjartansson og Kjartan Sveinsson sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu 16., 17. og 18. maí næstkomandi.