EN

22. mars 2020

Daglegt streymi frá Hörpu

Harpa, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Íslenska óperan tóku höndum saman og buðu upp á lifandi tónlistarstreymi úr Eldborg kl. 11:00 flesta morgna á fyrstu vikum samkomybanns. Tónleikunum var streymt á FB-síðu Hörpu og Sinfóníunnar, menningarvef RÚV og á RÚV 2.

Horfðu á liðin streymi

Föstudagurinn 1. maí
Mi casa su casa - Kvartett Einars Scheving flytur lög af nýrri plötu Einars Scheving. Kvartettinn skipa Einar Scheving, Eyþór Gunnarsson, Óskar Guðjónsson og Skúli Sverrisson.

Fimmtudagur 30. apríl
Voces Thules flytur miðaldamúsík að sínum hætti - Eggert Pálsson, Einar Jóhannesson, Eiríkur Hreinn Helgason, Eyjólfur Eyjólfsson, Sigurður Halldórsson syngja, blása í lúðra og berja á trumbur.

Miðvikudagurinn 29. apríl
Nautið hann Ferdinand - Sigrún Eðvaldsdóttir, konsertmeistari SÍ og Bergþór Pálsson, barítonsöngvari flytja bráðskemmtilegt verk eftir Alan Ridout fyrir fiðlu og sögumann.

Þriðjudagur 28. apríl
Aríur dagsins - Íslenskir einsöngvarar og Bjarni Frímann Bjarnason tónlistarstjóri Íslensku óperunnar flytja ástsælar óperuaríur og sönglög úr ýmsum áttum.

Mánudagur 27. apríl
Nicola Lolli konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Mathias Halvorsen píanóleikari flytja tónlist eftir Schubert og Jón Nordal fyrir fiðlu og píanó.

Föstudagur 24. apríl
Dúó Edda flytur fagrar tónlistarperlur. Dúettinn skipa þær Vera Panitch, fiðla og Steiney Sigurðardóttir, selló sem báðar eru hljóðfæraleikarar í Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Fimmtudagur 23. apríl
Sumardagskrá með Ingibjörgu Fríðu og Sigga þar sem þau flétta saman dásamlegum tónum úr öllum áttum.

 

Miðvikudagurinn 22. apríl
Beethoven og blásarar úr sinfóníuhljómsveit Íslands. Flytjendur: Julia Hantschel og Peter Tompkins, óbó, Grímur Helgason og Finn Schofield, klarínett, Bryndís Þórsdóttir og Brjánn Ingason, fagott, Stefán Jón Bernharðsson, Asbjörn Bruun og Frank Hammarin, horn

Þriðjudagur 21. apríl
Aríur dagsins. Íslenskir einsöngvarar flytja sígildar óperuaríur ásamt Bjarna Frímanni Bjarnasyni, píanóleikara og tónlistarstjóra Íslensku óperunnar.

Mánudagurinn 20. apríl
Hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands flytja kvintett eftir Sergej Prokofíev. Flytjendur: Páll Palomares, fiðla; Þórarinn Már Baldursson, víóla; Julia Hantschel, óbó; Grímur Helgason klarínett; Hávarður Tryggvason, kontrabassi. 

Föstudagur 17. apríl
Brasskvintett úr Sinfóníuhljómsveit Íslands á sviðið að þessu sinni.

Fimmtudagur 16.apríl
Tvíleikur. Hulda Jónsdóttir, fiðluleikari og sellistinn Ragnar Jónsson flétta saman tónlist eftir J. S. Bach, Honegger, Reinhold Glière og Þorkel Sigurbjörnsson.

Miðvikudagur 15. apríl
Franskir tónar - Blásarakvintett úr Sinfóníuhljómsveit flytur tónlist eftir franska tónskáldið Jean Francaix. Flytjendur eru Björg Brjánsdóttir flauta, Julia Hantschel óbó, Finn Schofield klarínett, Frank Hammarin horn og Bryndís Þórsdóttir fagott.

Þriðjudagur 14. apríl
Aríur dagsins - Íslenskir einsöngvarar og Bjarni Frímann Bjarnason tónlistarstjóri Íslensku óperunnar flytja sígildar óperuaríur.

Miðvikudagur 8. apríl
Þórir Jóhannsson, kontrabassaleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands og píanóleikarinn Ingunn Hildur Hauksdóttir flétta saman spennandi tónlist eftir ungverska tónskáldið Zoltán Kodály og hinn þjóðkunna jazzbassaleikara Árna Egilsson.

Þriðjudagur 7. apríl
Aríur dagsins. Ástsælar óperuaríur í úrvalsflutningi íslenskra söngvara og Bjarna Frímanns Bjarnasonar.

Mánudagur 6. apríl
Una Sveinbjarnardóttir, fiðluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands og Tinna Þorsteinsdóttir, píanóleikari flytja efnisskrá sem spannar margar aldir; allt frá tónlist eftir miðaldatónskáldið og galdranunnuna Hildegaard von Bingen og til okkar tíma.

Föstudagur 3. apríl 
Félagar í Sinfóníuhljómsveit Íslands, þau Nimrod Ron, túba, Nicola Lolli, fiðla, Justyna Bidler, fiðla, Łucja Koczot,víóla og Steiney Sigurðardóttir, selló flytja undurfallega tónlist eftir Franz Schubert Jean Françaix og David Baker. 

Fimmtudagur 2. apríl
Djassgítarleikarinn Andrés Þór Gunnlaugsson og píanóleikarinn Agnar Már Magnússon flytja frumsamda ópusa í bland við ástsæla og dúnmjúka djassstandarda. 

  

Miðvikudagur 1. apríl 
Duo Harpverk er skipað Katie Buckley, hörpuleikara og Frank Aarnink, slagverksleikara sem bæði eru í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Ásamt dansaranum Felix Urbina Alejandre úr Íslenska dansflokknum flytja þau spennandi dagskrá sem samanstendur af tónlist eftir Oliver Kentish, Daníel Bjarnason og Völu Gestsdóttur. 

 

Þriðjudagur 31. mars
Hallveig Rúnarsdóttir, sópran og Hrönn Þráinsdóttir píanó flytja lagaflokkinn Stúlkan heiðinni (Haugtussa) eftir Edvard Grieg við ljóð Arne Garborg og ramma flokkinn inn með íslenskum sönglögum eftir Jórunni Viðar og Tryggva M. Baldvinsson. 

 

Mánudagur 30. mars
Sigrún Eðvaldsdóttir, konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanóleikari og einn af meðlimum Sinfóníuhljómsveitar Íslands flytja heillandi prógram fyrir fiðlu og píanó. Á meðal verka á efnisskrá er ungverskur dans eftir Brahms, Tango Jalouise eftir Gade og Méditation úr óperunni Thaïs eftir Jules Massenet.

Föstudagur 27. mars kl. 11.
Hið ómótstæðilega Dúó Stemma skipað víóluleikaranum Herdísi Önnu Jónsdótturog Steef van Oosterhout slagverksleikara úr Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Fimmtudagur 26. mars kl.11
Rússneskir ljóðasöngvar og vinsælir slagarar í flutningi Nathalíu Druzin Halldórsdóttur og Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur.

  

Miðvikudagur 25. mars kl. 11. 
Mozart á miðvikudegi – Serenaða í c-moll eftir W. A. Mozart í flutningi blásaraoktetts úr Sinfóníuhljómsveit Íslands.

 

Þriðjudagur 24. mars kl. 11. 
Aría dagsins í boði Íslensku óperunnar með Kristjáni Jóhannessyni og Bjarna Frímanni Bjarnasyni.

 

Mánudagur 23. mars kl. 11.

Tangóar og tríó eftir Atla Heimi Sveinsson, F. Borne og Jósep Haydn í flutningi hljóðfæraleikara Sinfóníuhljómsveitar ÍslandsÁshildar Haraldsdóttur, Bryndísar Höllu Gylfadóttur og Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur.

 

Sunnudagur 22. mars kl. 11. 
Gissur Páll Gissurarson og Árni Heiðar Karlsson hefja leikinn með sígrænum sönglögum og aríum, úr suðri og norðri. Lög og ljóð eftir Puccini, Sigvalda Kaldalóns, Tosti og fleiri.