EN

28. september 2017

Kvikmyndatónlist frá Hollywood

 

Á tónleikum 12. október verður gægst í gullkistu kvikmyndatónlistar frá Hollywood. Leikin verða stef úr Superman og Star Wars eftir hinn sívinsæla John Williams og þekkt verk úr Gone with the Wind, Breakfast at Tiffany's, Ben-Húr og Brúin yfir ána Kwai. Hljómsveitarstjóri er Richard Kaufman sem hefur áratuga reynslu af störfum í Hollywood.

Miðasala á tónleikana er í fullum gangi hér á vef hljómsveitarinnar.