EN

8. júní 2006

Síðustu tónleikar starfsársins. Ashkenazy stjórnar og Bryndís Halla leikur einleik

Þá er komið að síðustu tónleikum starfsársins 2005 – 2006. Enginn annar en Vladimir Ashkenasy mun stjórna flutningi á 4. sinfóníu Tsjajkovskíjs, nýju verki eftir Þorkel Sigurbjörnsson, sem hlotið hefur nafnið Sumartónar og síðast en ekki síst mun leiðandi sellisti Sinfóníuhljómsveitarinnar, Bryndís Halla Gylfadóttir, leika sellókonsert eftir Evdvard Elgar. Tónleikarnir verða alls tvennir með þessari efnisskrá, þeir fyrri fimmtudaginn 15. júní og þeir seinni föstudaginn 16 júní og hefjast klukkan 19.30 bæði kvöldin. Bryndís Halla Gylfadóttir lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1984 +++undir handleiðslu Gunnars Kvaran. Eftir það hélt hún til náms í Boston við New England Conservatory þar sem kennarar hennar voru Lawrence Lesser og Colin Carr. Hún lauk þar Mastersnámi árið 1989. Árið 1990 tók Bryndís Halla við leiðandi stöðu sellóleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands og gegnir því starfi nú. Bryndís Halla hefur verið virkur þátttakandi í íslensku tónlistarlífi undanfarin ár, jafnt sem einleikari og í kammertónlist. Hún er félagi í Trio Nordica, Ethos kvartettinum og Caput hópnum. Hún hefur leikið inn á fjölda geisladiska. Auk þess að leika á tónleikum hér á landi spilar Bryndís reglulega á tónleikum bæði í Evrópu og Asíu.Auk þess að leika hér heima kemur Bryndís Halla reglulega fram sem einleikari í Evrópu og Asíu.Bryndís Halla Gylfadóttir lauk einleikaraprófi fra Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1984 undir handleiðslu Gunnars Kvaran. Eftir það hélt hún til náms í Boston við New England Conservatory þar sem kennarar hennar voru Lawrence Lesser og Colin Carr. Hún lauk þar Mastersnámi árið 1989. Árið 1990 tók Bryndís Halla við leiðandi stöðu sellóleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands og gegnir því starfi nú. Bryndís Halla hefur verið virkur þátttakandi í íslensku tónlistarlífi undanfarin ár, jafnt sem einleikari og í kammertónlist. Hún er félagi í Trio Nordica, Ethos kvartettinum og Caput hópnum. Hún hefur leikið inn á fjölda geisladiska. Auk þess að leika á tónleikum hér á landi spilar Bryndís reglulega á tónleikum bæði í Evrópu og Asíu.Auk þess að leika hér heima kemur Bryndís Halla reglulega fram sem einleikari í Evrópu og Asíu.