EN

8. ágúst 2006

Endurnýjun áskrifta fyrir starfsárið 2006 - 2007 er hafin í Háskólabíói

Skrifstofa Sinfóníuhljómsveitar Íslands er nú opin á nýjan leik að loknum sumarleyfum. Í ágústmánuði gefst áskrifendum kostur á að endurnýja áskriftir sínar en almenn sala hefst föstudaginn 1. september. Um þessar mundir ætti nýr ársbæklingur að berast áskrifendum okkar í pósti. Þeir sem óska eftir að fá ársbæklinginn sendan geta haft samaband í síma 545 2500 eða sent okkur á midasala@sinfonia.is og óskað efti eintaki án endurgjalds. Til þess að skoða vefútgáfu af bæklinginum er hægt að smella hér!