EN

21. nóvember 2006

Parsifal og Tristan og Isolde á efnisskrá Wagner-tónleika

Það verður mikið um dýrðir í Háskólabíói fimmtudaginn 23. nóvember en þá flytur Sinfóníuhljómsveit Íslands óperutónlist eftir Richard Wagner ásamt fjórum einsöngvurum og kór. Á efnisskránni eru forleikurinnn að Tristan og Isolde og 3. þáttur óperunnar Parsifal, hins margslungna og margræða verks sem var aldarfjórðung í smíðum hjá höfundi. Það er sannkallaður hvalreki fyrir íslenska óperuunnendur að lokaþáttur þessarar mögnuðu óperu skuli nú heyrast á íslensku tónleikasviði í fyrsta sinn. Ekki síður er það það fagnaðarefni að fá Kristinn Sigmundsson á svið með Sinfóníuhljómsveitinni ásamt þeim Kolbeini Ketilssyni, Wolfgang Schöne og Ruth Marie Nicolay sem hleypur í skarðið fyrir Petru Lang sem forfallaðist. Karlakórinn Fóstbræður og kvenraddir úr Hljómeyki syngja á tónleikunum en kórstjóri er Árni Harðarson. Hljómsveitarstjóri er Johannes Fritzsch. +++ Reynir Axelsson segir svo frá í efnisskrá tónleikanna um forleikinn að Tristan og Isolde: “Forleikurinn er á sveimi kringum tóntegundina a-moll, en það kemur ekki einn einasti a-moll-hljómur fyrir í honum öllum. Hvers vegna ekki? Það mundi þýða hvíld, úrlausn, jafnvel niðurstöðu. En þetta er tónlist sem unnir sér engrar hvíldar, hún vill halda áfram og áfram, viðstöðulaust. Að tylla sér niður á a-moll-hljóm, þó ekki væri nema eins og kría á staur, væri eins og spennufall. Jafnvel þegar tónlistin hreyfist sem hægast er engrar hvíldar að vænta.” Parsifal er bæði óvenjuleg og einstaklega áhrifamikil ópera. Í henni blandast kristin trú og goðsagnir við upphafna tónlist sem oft er varla af þessum heimi. Parsifal er ung og saklaus hetja, sá eini sem getur læknað sár Amfortasar, sem gætir kaleiksins sem Kristur drakk af við síðustu kvöldmáltíðina. Með því að afneita sjálfum sér tekst Parsifal að frelsa Amfortas og menn hans undan áhrifum Klingsors hins illa. Tónleikar hefjast líkt og áður sagði kl 19.30, í Háskólabíói, fimmtudaginn 23. nóvember Hljómsveitarstjóri: Johannes Fritzsch Einsöngvarar: Wolfgang Schöne, Ruth Marie Nicolay, Kristinn Sigmundsson, Kolbeinn J. Ketilsson Kór: Karlakórinn Fóstbræður og kvenraddir úr Hljómeyki Kórstjóri: Árni Harðarson Richard Wagner: Tristan & Isolde, Prelude & Lieberstod Richard Wagner: Parsifal 3. þáttur