EN

14. september 2007

Uppselt á Víking

Nú þegar er uppselt á tónleikana föstudaginn 28. september nk., en þá flytur Víkingur Heiðar Ólafsson með hljómsveitinni hinn magnaða þriðja píanókonsert Rakmaninoffs. Auk konsertsins er á efnisskránni forleikur Jóns Leifs að Galdra-Lofti og Gátutilbrigði Elgars. Rumon Gamba stjórnar. Fráteknir miðar sem ekki hafa verið greiddir á tónleikadag verða seldir samdægurs. Hægt er að sjá hvernig staðan er með því að ýta á miðasölukrækjuna hér að ofan. Rétt er að minna þá sem enn vilja tryggja sér áskrift, Regnbogakort eða miða á einstaka tónleika að miðarnir seljast hratt á þessum árstíma og bestu sætin fara fyrst.