EN

10. ágúst 2009

Endurnýjun og sala áskiftakorta

Endurnýjun áskrifta og sala nýrra áskriftarkorta er nú í fullum gangi. Dagskráin verður fjölbreytt á næsta starfsári og óhætt er að segja það þar sé að finna mörg spennandi verk. Þeir sem vilja endurnýja áskrift sína óbreytta geta gert það hér á vefsíðu okkar en þar er á einfaldan og öruggan hátt hægt að ganga frá endurnýjun og greiða með greiðslukorti. Áskrifendur okkar hafa forkaupsrétt á sætum sínum til 25. ágúst. Verðið á áskriftarröðum hefur ekki hækkað á milli ára og við bjóðum upp á léttgreiðslur til allt að fjögurra mánaða. Um þessar mundir ætti nýr ársbæklingur að berast áskrifendum okkar í pósti. Þeir sem óska eftir að fá ársbæklinginn sendan geta haft samaband í síma 545 2500 eða sent okkur á sinfonia@sinfonia.is og óskað eftir eintaki án endurgjalds. Hægt er að kynna sér efnisská næsta starfsárs og áskriftaraðir með því að smella á linkinn: Efnisskrá 2009 - 2010