EN

29. ágúst 2016

Yrkja II – Tónskáldastofa

Sinfóníuhljómsveit Íslands og Íslensk tónverkamiðstöð taka höndum saman

Í vetur auglýstu Tónverkamiðstöð og Sinfóníuhljómsveit Íslands öðru sinni eftir umsóknum frá tónskáldum um þátttöku í Yrkju. Yrkja er starfsþróunarverkefni Tónverkamiðstöðvar og veitir tónskáldum sem stödd eru á fyrri hluta starfsferils síns tækifæri til að vinna með úrvali íslenskra listastofnana. 

Tvö tónskáld voru valin til að skrifa stutt verk fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands. Það eru Finnur Karlsson og Þráinn Hjálmarsson auk Þórunnar Grétu Sigurðardóttur sem þegar hafði verið valin til þátttöku. Þau vinna undir handleiðslu Daníels Bjarnasonar, staðarlistamanns Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Tónskáldin fá innsýn í innra starf hljómsveitarinnar og vinna náið með hljóðfæraleikurunum, Daníel, skrifstofu og yfirstjórn SÍ.

Tónskáldin mættu með verk sín á æfingu með hljómsveitinni í dag. Verkin verða síðan frumflutt á sérstökum uppskerutónleikum á Myrkum músíkdögum, föstudaginn 27. janúar kl. 12.

Um Yrkju

Markmið Yrkju er að veita hagnýta reynslu sem getur orðið hornsteinn í ferli tónskáldsins. Verkefnið er fyrir tónskáld á fyrri hluta starfsferilsins og brúar bilið milli háskólanáms og starfsferils með því að undirbúa tónskáld fyrir vinnu í faglegu umhverfi hjá stærri hljómsveitum, hátíðum og öðrum listastofnunum hérlendis og erlendis. Í YRKJU fær tónskáldið tækifæri til að þróa hæfileika sína og listrænan metnað, öðlast starfsreynslu og mynda tengsl í tónlistargeiranum.

Áhersla er lögð á ferli listsköpunar og munu þátttakendur í Yrkju verða hvattir til að þróa hugmyndir sínar og aðferðir við sköpun. Við viljum hlúa að starfsferli tónskáldanna og mun því verkefnið fela í sér ráðgjafaviðtöl í Tónverkamiðstöð um starfsferil tónskáldins og mun miðstöðin skipuleggja fund þar sem tónskáldin í verkefninu hittast og deila reynslu sinni af verkefninu og skiptast á hugmyndum.