EN

13. júní 2025

Marco Santos ráðinn leiðari slagverksdeildar

Marco Santos hefur verið ráðinn leiðari slagverksdeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands að loknu sex mánaða reynslutímabili í hljómsveitinni.

Santos lauk BA-námi við Escola Superior de Música de Lisboa (ESML) og er að ljúka meistaraprófi í tónlistarflutningi við Zürcher Hochschule der Künste (ZHdK). Hann hefur unnið til verðlauna í nokkrum alþjóðlegum keppnum — þar á meðal í sneriltrommu-keppni ítalska slagverks-sambandsins, Tomarimbando og Paços Premium — og hefur komið fram með hljómsveitum á borð við Staatskapelle Dresden, Sinfóníuhljómsveit Portúgals, Gulbenkian hljómsveitinni og sinfóníuhljómsveitinni í Luzern, þar sem hann var í akademíunni.

Santos er einnig meðlimur í Orquestra XXI og hefur leikið með fremstu ungmennahljómsveitum Evrópu, þar á meðal Gustav Mahler ungmennahljómsveitinni, Pólsku ungmennahljómsveitinni til minningar um Jerzego Semkowa, Portúgölsku ungmennahljómsveitinni og Nýju fílharmóníunni í München.

Á árunum 2017 til 2022 starfaði hann sem pákuleikari og slagverksleikari við Portúgölsku kammerhjómsveitina.