Staða leiðara 2. fiðlu
Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir til umsóknar lausa stöðu leiðara annarrar fiðlu.
Hæfnispróf fer fram 9. september 2025 í Hörpu, Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 6. ágúst nk.
Ekki þarf að fylla út umsóknareyðublað, nægilegt er að sækja um með því að senda tölvupóst, ásamt ferilskrá og afritum af viðeigandi prófskírteinum, til mannauðsstjóra á tölvupóstfangið starf@sinfonia.is.
Einleiksverk
1. Fyrsti kafli með kadensu og annar kafli án kadensu úr einum af eftirtöldum konsertum:
W.A. Mozart Fiðlukonsert í A-dúr, K. 219
W.A. Mozart Fiðlukonsert í D-dúr, K. 218
W.A. Mozart Fiðlukonsert í G-dúr, K. 216
2. Fyrsti kafli með kadensu úr einum af eftirtöldum rómantískum konsertum:
P. Tchaikovsky Fiðlukonsert í D-dúr op.35
J. Brahms Fiðlukonsert í D-dúr op. 77
J. Sibelius Fiðlukonsert í d moll op. 47
A. Dvorák Fiðlukonsert í a moll op. 53
L. Beethoven Fiðlukonsert í D-dúr op. 61
Hljómsveitar- og mögulegir kammermúsíkpartar
Hljómsveitar- og kammermúsíkpartar verða sendir þátttakendum á rafrænu formi þegar umsókn hefur verið samþykkt, ásamt nánari upplýsingum um stað- og tímasetningu hæfnisprófs. Í þriðju umferð hæfnisprófs gæti verið óskað eftir að þátttakendur leiki kammermúsík með hljóðfæraleikurum úr hljómsveitinni.
Um starfið
Um er að ræða 100% starf leiðara annarrar fiðlu Sinfóníuhljómsveitar Íslands en samtals eru þrettán stöðugildi í deildinni. Leiðari er leiðtogi deildar sinnar, hefur umsjón með deildinni og er í forsvari fyrir hana. Þá situr hann í dómnefndum í samræmi við reglur stjórnar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Leiðari leikur þær einleiksstrófur sem tilheyra deild hans, nema þær sem sérmerktar eru öðrum parti. Gerð er krafa um háskólamenntun í hljóðfæraleik. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Sinfóníuhljómsveitar Íslands og fjármálaráðherra. Aðilar utan EES-svæðis þurfa að sækja um atvinnuleyfi sem háð er samþykki Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og Útlendingastofnunar.
Um hljómsveitina
Sinfóníuhljómsveit Íslands er þjóðarhljómsveit og var stofnuð árið 1950. Stöður fastráðinna hljóðfæraleikara eru 87. Hljómsveitin hefur um árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum og hefur fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis. Hljómsveitin heldur um 100 tónleika á hverju starfsári, m.a. áskriftartónleika með heimsþekktum stjórnendum og einleikurum. Við erum stolt af metnaðarfullu fræðslustarfi en árlega sækja þúsundir nemenda á öllum aldri hljómsveitina heim. Þá stendur hljómsveitin einnig fyrir margvíslegum fræðsluverkefnum til að leiða tónlistarnema inn í heim atvinnufólks. Eva Ollikainen hefur verið aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi hljómsveitarinnar frá árinu 2020. Heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands er Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsvæði Sinfóníuhljómsveitar Íslands, www.sinfonia.is og hjá mannauðsstjóra, starf@sinfonia.is, (sími 891 9141).