EN

  • ungsveit_listi

24. febrúar 2012

Opnað fyrir umsóknir í Ungsveit

Ungsveit SÍ 2012

Hljómsveitarnámskeið Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2012 stendur frá laugardeginum 8. september til sunnudagsins 30. september. Að þessu sinni verður verkefni hljómsveitarinnar Pláneturnar, op. 32 eftir Gustav Holst. Svissneski hljómsveitarstjórinn Baldur Brönnimann stjórnar námskeiðinu sem lýkur með tónleikum í Hörpu, 30. september kl. 14:00

Baldur Brönnimann er tónleikagestum Sinfóníuhljómsveitar Íslands að góðu kunnur

og hefur stjórnað hljómsveitinni við lof gagnrýnenda. Brönnimann heldur reglulega meistaranámskeið fyrir ungt fólk og hefur unnið mikið með æskulýðshljómsveitum víða um heim, meðal annars í Skotlandi og Ástralíu. Brönnimann er aðalstjórnandi Þjóðarhljómsveitarinnar í Kólumbíu en auk þess er hann listrænn stjórnandi norska kammerhópsins BIT20 og starfar reglulega með hljómsveitum á borð við London Sinfonietta, Skosku kammerhljómsveitinni og Sinfóníuhljómsveit Lundúna.