EN

26. febrúar 2012

Sinfónían fær auglýsingaverðlaun

 

Föstudagskvöldið 24.febrúar 2012 fór fram hin árlega afhending íslensku auglýsingaverðlaunanna.  Sinfóníuhljómsveit Íslands og auglýsingastofan Jónsson og Le´macks fengu verðlaun fyrir bestu útvarpsauglýsinguna.

Lúðurinn er veittur í 16 flokkum þar sem auglýsingar sem skara fram úr á árinu 2011 eru verðlaunaðar. Það sem ræður úrslitum er hversu frumleg, snjöll og skapandi hugmyndin er og svo hversu vel hún er útfærð.