EN

3. september 2012

Áheyrnarprufur  fyrir jólatónleika


Áheyrnarprufur í einleikarakeppni jólatónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2012 verða haldnar sunnudaginn 28. október kl. 11:00 í Hörpu.  Í ár er leitað eftir þremur slagverksleikurum á grunnskólaaldri til að flytja „Litla trommuleikarann“ eftir K.K. Davis með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Skráning í keppnina fer fram á netfanginu hjordis@sinfonia.is. Í umsókn þarf að tilgreina: nafn, aldur, netfang, símanúmer og námsferil í tónlistarnámi. Nánari upplýsingar veitir Hjördís Ástráðsdóttir
fræðslustjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands  í síma 5452500 eða á netfangið hjordis@sinfonia.is