EN

24. apríl 2014

Sinfóníuhljómsveit Íslands á BBC Proms í sumar

- Langþráður draumur og mikill heiður

Proms tónlistarhátíðin, sem haldin er af breska ríkisútvarpinu BBC, er átta vikna löng hátíð sem fer nú fram 120. sumarið í röð. Hún fer aðallega fram í Royal Albert Hall í London og samanstendur dagskráin af tugum hljómsveitartónleika auk minni kammertónleika, samtals verða um 100 viðburðir á meðan á hátíðinni stendur. Proms er án efa ein allra þekktasta og virtasta tónlistarhátíð heims.

Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur verið boðið að leika á hátíðinni undir stjórn aðalhljómsveitarstjóra hennar, Ilans Volkov. Tónleikarnir verða haldnir í Royal Albert Hall 22. ágúst nk. Á dagskrá verða bæði íslensk og erlend verk. Hljómsveitin leikur Geysi eftir Jón Leifs og Magma eftir Hauk Tómasson. Þá eru á efnisskránni Píanókonsert eftir Robert Schumann og eitt þekktasta verk tónbókmenntanna, 5. sinfónía Beethovens. 

„Það er langþráður draumur og mikill heiður að vera boðið á leika á Proms og greinilegt að BBC hefur trú á okkur þar sem við fáum föstudagskvöld í Royal Albert Hall og því líkur á að tónleikarnir verði vel sóttir. Efnisskráin trekkir líka, með frægustu sinfóníu Beethovens auk þess sem Sinfóníuhljómsveitin leikur íslenska tónlist sem lýsir íslenskri náttúru. Við erum því full eftirvæntingar og hlökkum mikið til,“ segir Arna Kristín Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Einleikari á tónleikunum er bandaríski píanóleikarinn Jonathan Biss. Hann er einn af eftirtektarverðustu píanóleikurum sem komið hefur fram á sjónarsviðið á undanförnum árum. Sérstaklega hefur túlkun hans á verkum Schumanns vakið mikla athygli. Biss hefur að undanförnu helgað sig píanótónlist Schumanns og leikið verk hans á yfir fimmtíu tónleikum um allan heim. 

Í dag kynnti BBC dagskrá Proms hátíðarinnar en miðasala hefst 17. maí. Hefð er fyrir því að töluverð stemning skapist í tengslum við miðasöluna. Hluti miðanna er í stæði en það er gert til að hafa tónleika hátíðarinnar frjálslega líkt og markmiðið hefur verið frá upphafi þegar tónleikarnir voru að mestu haldnir í lystigörðum Lundúnaborgar. 

Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur áður komið fram á tónleikum erlendis við góðan orðstír m.a. í Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Þýskalandi, Austurríki, Frakklandi og Bandaríkjunum en þetta er í fyrsta skipti sem hún leikur á Proms. 

Vefsíða hátíðarinnar: http://www.bbc.co.uk/proms/