EN

27. september 2009

Fullt hús hjá Ungsveit SÍ

ungsveit_storUngsveit SÍ flutti hina magnþrungnu fimmtu sinfóníu Sjostakovitsj undir stjórn Rumons Gamba á tónleikum í Háskólabíói laugardaginn 26. september. Góð mæting var á tónleikana og stemmningin var frábær á þessum fyrstu tónleikum Ungsveitarinnar. Fögnuður var mikill að flutningi loknum og risu áhorfendur úr sætum til að fagna þessu efnilega tónlistarfólki.

Óhætt er að segja að framtíðin sé björt á vettvangi klassísks tónlistarflutnings á Íslandi ef marka má frammistöðuna á þessum tónleikum.