EN

4. júlí 2014

Staða leiðara í víóludeild auglýst

Leiðari í víóludeild

Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir  lausa til umsóknar stöðu leiðara í víóludeild frá og með starfsárinu  2014–15.

Hæfnispróf fer fram 2. október 2014  í Hörpu.


Einleiksverk:

1.  Fyrsti kafli & kadensa úr Hoffmeister eða Stamitz konsert

2. Fyrsti kafli úr einum af eftirfarandi konsertum: Bartók, Walton eða Hindemith – Der Schwanendreher.

Hljómsveitarpartar verða aðgengilegir þátttakendum að minnsta kosti tveimur vikum fyrir hæfnisprófdag. Þátttakendur fá senda á rafrænu formi hljómsveitarparta ásamt nánari upplýsingum um staðsetningu.


Umsóknarfrestur er til 30. júlí 2014.

Umsóknir, ásamt ferilskrá og fylgiskjölum, skulu berast til Unu Eyþórsdóttur, mannauðsstjóra (una@sinfonia.is).


Dómnefnd mun meta hverjum verður boðið til þátttöku og verður þeim sent boð skömmu eftir að umsóknarfrestur er liðinn. Umsóknarfrestur kann að verða framlengdur. Öllum umsóknum verður svarað. Umsókn og hæfnispróf gilda í eitt ár.

Um starfið

Um er að ræða 100% starfshlutfall sem leiðari í víóludeild hjá SÍ. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags SÍ og fjármálaráðherra. Gert er ráð fyrir að ráðið verði í stöðuna á starfsárinu 2014-15.

Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá mannauðsstjóra Unu Eyþórsdóttur (una@sinfonia.is) í síma 898 5017.