Ungsveit SÍ: Hljómsveitarnámskeið 2015
Auglýst eftir umsóknum
Hljómsveitarnámskeið Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2015 stendur frá mánudeginum 7. september til sunnudagsins 4. október. Að þessu sinni verður verkefni hljómsveitarinnar sinfónía nr. 10 eftir Shostakovitsj.
Hljómsveitarstjórinn Eivind Aadland, sem er vinsæll fastagestur hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands og einn kunnasti hljómsveitarstjóri Noregs, stjórnar Ungsveitinni í ár. Hljómsveitarnámskeiðinu lýkur með tónleikum í Hörpu, 4. október kl. 17:00.
Prufuspil Ungsveitar SÍ 2015 verða haldin fyrir öll hljóðfæri fimmtudaginn 19. og föstudaginn 20. mars í Hörpu.
Allir nemendur þurfa að sækja um til að leika með hljómsveitinni, líka þeir sem spiluðu með síðast. Hægt er að nálgast umsóknareyðublað hér að neðan. Umsóknarfrestur er til miðnættis 15. febrúar.
Umsækjendur fá staðfestingu á að umsókn hafi verið móttekin. Prufuspilspartar verða sendir út til nemenda í tölvupósti þegar umsókn hefur borist en prufuspilstímar verða sendir öllum umsækjendum eftir að umsóknarfrestur rennur út.
Staða konsertmeistara
Sérstök prufuspil verða haldin um stöðu konsertmeistara sem fara fram annan hvorn prufuspilsdaganna. Hver umsækjandi þarf að leika fyrsta þátt úr fiðlukonsert nr. 3, 4 eða 5 eftir W.A. Mozart, ásamt kadenzu. Leikið er án píanómeðleiks.
Þeir sem ekki geta mætt í prufuspilið er bent á að senda inn myndbandsupptöku með hljóði í góðum gæðum á neðangreint netfang. Ekki er hægt að sækja um konsertmeistarastöðu með innsendu myndbandi. Dómnefnd getur hins vegar farið fram á að hljóðfæraleikari sem sendir inn myndband verði látin leika um sæti innan sinnar deildar að hausti.
Nemendum sem standast prufuspil verður boðið sæti í Ungsveit SÍ 2015 og þurfa þeir að greiða 10.000 kr. skráningargjald sem er óafturkræft við upphaf námskeiðsins.
Vinsamlegast athugið að Ungsveit SÍ er aðallega hugsuð sem vettvangur fyrir samspil nemenda sem lokið hafa miðprófi hið minnsta. Mikil samkeppni er um sæti í Ungsveitinni og þess vegna er lykilatriði að koma vel undirbúin/undirbúinn til leiks.
Upplýsingar um Ungsveit SÍ 2015 veitir
Hjördís Ástráðsdóttir, fræðslustjóri
sími 5452504/8988934 » hjordis@sinfonia.is
- Eldri frétt
- Næsta frétt