EN

20. júní 2015

Auglýst eftir leiðara í óbódeild

Um er að ræða 100% starfshlutfall sem 1. óbóleikari (leiðari) hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands.  Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags SÍ og fjármálaráðherra. Gert er ráð fyrir að ráðið verði í stöðuna í janúar 2016.

Dómnefnd mun meta hverjum verður boðið til þátttöku og verður þeim sent boð skömmu eftir að umsóknarfrestur er liðinn. Umsóknarfrestur kann að verða framlengdur. Öllum umsóknum verður svarað. Umsókn og hæfnispróf gilda í eitt ár.

Umsóknarfrestur er til 13. júlí 2015. 

Nánar