EN

26. nóvember 2002

“Þannig fæ ég að minnsta kosti að sitja hluta af tónleikunum”

Philippe Entremont Þetta er haft eftir Philippe Entremont stjórnanda og einleikara en á efnisskrá tónleika hans er jafnan að finna píanókonsert sem hann stjórnar frá píanóinu. Hann hefur aflað sér mikilla vinsælda á tónleikaferðum sínum um víða veröld í ríflega hálfa öld með heillandi framkomu, eldmóði og djúpu tónlistarinnsæi. Á tónleikunum 28. nóvember eru m.a. píanókonsert eftir Beethoven og hljómsveitarsvítan Der Bürger als Edelmann eftir Richard Strauss á efnisskránni. Philippe Entremont þykir taka sérstaklega vel upp með túlkun sína á píanó- og hljómsveitartónlist manna á borð við Beethoven, Haydn og Brahms, að Mozart ógleymdum.