EN

25. ágúst 2015

Upptökur á verkum Jóns Nordal

Sænski hljómsveitarstjórinn Johannes Gustavsson stýrir Sinfóníuhljómsveit Íslands í upptökum í þessari viku. Hljóðrituð verða 5 verk Jóns Nordal en á næsta ári fagnar hann níræðisafmæli sínu. Upptökurnar eru gerðar í samstarfi hljómsveitarinnar, finnska útgáfufyrirtækisins Ondine og Ríkisútvarpsins. 


Mynd: Karólína Thorarensen