2. júní 2007
Miðasala opin frá klukkan 13.00 í Háskólabíó laugardaginn 2. júní
Miðasala Sinfóníuhljómsveitar Íslands verður opin frá klukkan 13 í dag laugardaginn 2. júní en þá verða lögin skemmtilegu úr Ávaxtakörfunni flutt. Aðeins örfá sæti eru laus á fyrri tónleikana sem hefjast klukkan 14 en enn er hægt að fá miða á seinni tónleikana sem hefjast klukan 17. Á tónleikunum verða fluttar nýjar útsetningar á lögum Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar í flutningi úrvalssöngvaranna Jóns Jóseps, eða Jónsa eins og hann er kallaður, Selmu Björnsdóttur, Andreu Gylfadóttur og Valgerðar Guðnadóttur. Kynnir á tónleikunum er enginn annar en Örn Árnason og hljómsveitarstjóri er Bernharður Wilkinson. Söngleikurinn um Ávaxtakörfuna eftir Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur og Þorvald Bjarna Þorvaldsson hefur notið gríðarlegra vinsælda frá því verkið var fyrst sýnt árið 1998 í Íslensku óperunni. Verkið var aftur sett á svið árið 2005 í Austurbæ og alls sáu um 16 þúsund manns sýninguna þá. Nú geta börn á öllum aldri endurnýjað kynnin við Ávaxtakörfuna og heyrt nokkur af lögunum úr leikritinu í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands og gesta. Góða skemmtun og fandalagga-hoj!