EN

30. október 2017

Sigurvegarar í keppni Ungra einleikara 2018

Helgina 28. og 29. október fór fram hin árlega keppni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Listaháskóla Íslands um að fá að koma fram með hljómsveitinni. Aldrei fyrr hafa keppendur verið jafn margir, en 23 hljóðfæraleikarar og söngvarar skráðu sig til keppninnar. 

Dómnefnd var skipuð þeim Sigrúnu Eðvaldsdóttur, 1. konsertmeistara Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sem var formaður nefndarinnar; Árna Heimi Ingólfssyni, píanóleikara og tónlistarfræðingi, Sigríði Ellu Magnúsdóttur, söngkonu, Matthíasi Nardeau, óbóleikara og Magnúsi Ragnarssyni, kór- og hljómsveitarstjóra. 

Dómnefnd valdi fjóra sigurvegara að þessu sinni og munu þau koma fram á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg Hörpu þann 11. janúar á næsta ári. 

Sigurvegararnir í keppninn eru:
Ásta Kristín Pjetursdóttir, víóluleikari
Bryndís Guðjónsdóttir, einsöngvari
Guðmundur Andri Ólafsson, hornleikari
Romain Þór Denuit, píanóleikari 

Tónleikarnir verða fimmtudaginn 11. janúar í Eldborg Hörpu og hefjast kl. 19:30. Stjórnandi verður Daniel Raiskin.

Miðasala er hafin hér.