EN

26. febrúar 2024

Sinfóníuhljómsveit Íslands fer í skólaheimsókir í vikunni

Sinfóníuhljómsveit Íslands bregður undir sig betri fætinum og heimsækir nokkra grunnskóla í Reykjavík í vikunni. Hjómsveitin mun halda sex skólatónleika í Seljaskóla, Breiðholtsskóla, Rimaskóla og Klettaskóla.

Á tónleikunum flytur Sinfóníuhljómsveit Íslands tónlistarævintýrið um Maxímús Músíkús, þar sem Maxi kynnist tónlistinni af eigin raun og leiðir hlustendur með sér inn í heillandi hljóðheim hljómsveitarinnar. Tónlistin sem hljómar á tónleikunum er úr ýmsum áttum og má þar nefna Bolero eftir Maurice Ravel og Á Sprengisandi eftir Sigvalda Kaldalóns, að ógleymdu laginu hans Maxa. Ævintýrið um Maxa hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar og verðlaun og verið þýtt á fjölda tungumála. Höfundur tónlistarævintýranna um Maxímús Músíkús er Hallfríður Ólafsdóttir en hún var leiðandi flautuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands í rúma tvo áratugi og Þórarinn Már Baldursson víóluleikari myndskreytir. Ross Jamie Collins heldur um tónsprotann og sögumaður er Valur Freyr Einarsson leikari.

123-100

Árlega tekur hjómsveitin á móti rúmlega tíu þúsund nemendum á skólatónleikum sínum í Hörpu en hjómsveitin fer einnig reglulega í skólaheimsóknir og er það hluti af metnaðarfullu fræðslustarfi Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Í næstu viku heimsækir hljómsveitin einnig Stykkishólm og Borgarnes og leikur þar fyrir nemendur af öllu Snæfellsnesi og nemendur úr Borgarnesi á tvennum skólatónleikum sem fram fara í íþróttahúsinu í Borgarnesi 7. mars og í íþróttahúsinu Stykkishólmi 8. mars. Þar flytur hljómsveitin einnig hið sívinsæla tónlistarævintýri um Maxímús Músíkús.

Mánudagur 26. febrúar
kl. 11:20-12:05 -Tónleikar í Seljaskóla

Þriðjudagur 27. febrúar
09:30-10:10 – Tónleikar í Breiðholtsskóla
11:00-11:40 – Tónleikar í Breiðholtsskóla

Miðvikudagur 28. febrúar
09:30-10:10 – Tónleikar í Rimaskóla
11:00-11:40 – Tónleikar í Rimaskóla

Fimmtudagur 29. febrúar
11:00 -11:40 – Tónleikar í íþróttasal Klettaskóla

Fimmtudagur - 7. mars kl. 11:00
Tónleikar í íþróttahúsinu í Borgarnesi

Föstudagur - 8. mars kl. 11:00
Tónleikar í íþróttahúsinu Stykkishólmi