EN

31. október 2018

Tónleikaferð til Japans

Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur í tónleikaferð til Japans næstkomandi nóvember. Verður þetta í fyrsta sinn sem hljómsveitin ferðast til Asíu og verða haldnir tónleikar í öllum helstu borgum Japans, m.a. í Tókýó, Osaka, Sapporo og Hamamatsu. Nær uppselt er á alla tónleika hljómsveitarinnar í Japan. Stjórnandi í ferðinni er Vladimir Ashkenazy, aðalheiðursstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, en hann hefur notið gífulegra vinsælda í Japan um áratugaskeið. Einleikari er japanski píanóleikarinn Nobuyuki Tsujii (Nobu) sem er einn vinsælasti einleikari þar í landi. Tónleikahald er í höndum Avex Group sem stendur fyrir tónleikaferð Sinfóníuhljómsveitar Íslands til Japans.

Á efnisskrá hljómsveitarinnar verða píanókonsertar nr. 2 eftir Rakhmaínov og Chopin, og sinfóníur nr. 2 eftir Sibelius og Rakhmanínov. Einnig hljóma Jökulljóð eftir Þorkel Sigurbjörnsson.

Hljómsveitin hitar upp fyrir tónleikaferðina með Nobu og Ashkenazy í Eldborg fimmtudaginn 25. október kl. 19:30. Nánar um tónleikana.

Tónleikadagskrá í Japan

  1.    3. nóv. » 14:00  Kawasaki  // Muza Kawasaki Symphony Hall
  2.    4. nóv. »  15:00  Hamamatsu // Act City Hamamatsu
  3.    6. nóv. » 19:00  Sapporo // Sapporo Community Plaza
  4.    8. nóv. » 19:00  Tokyo // Tokyo Opera City
  5.    9. nóv. » 18:45   Hiroshima // Bunka Gakuen HBG Hall
  6.    10. nóv. »  14:00  Fukuoka // Acros Fukuoka
  7.    11. nóv. » 14:00  Osaka // Festival Hall
  8.    13. nóv. »  18:45  Nagoya // NTK Hall, Forest Hall 
  9.    14. nóv. »  19:00  Okayama // Okayama Symphony Hall
  10.    16. nóv. »  19:00  Tokyo // Tokyo Metropolitan Theatre
  11.    17. nóv. »  15:00  Tokorozawa // Civic Culture Centre Muse
  12.    18. nóv. »  17:00 Nagaoka // Nagaoka Lyric Hall

Nobuyuki Tsujii, píanisti

Japanski píanistinn Nobuyuki Tsujii er stórstjarna í heimalandi sínu og það ekki að ósekju. Þessi 29 ára gamli snillingur hefur verið blindur frá fæðingu en lætur það ekki aftra sér og lærir jafnvel erfiðustu verk píanóbókmenntanna eftir heyrn.

Nobu, eins og hann er almennt kallaður, hóf píanónám fjögurra ára gamall og kom í fyrsta sinn fram með hljómsveit tíu ára. Hann hlaut gagnrýnenda-verðlaunin í Chopin-keppninni árið 2005, þá aðeins 17 ára, og hreppti gullverðlaun í Van Cliburn-píanókeppninni árið 2009. Sjálfur Van Cliburn lét hafa eftir sér um leik hans þar að hann hefði verið „alveg guðdómlegur“.

Nobu hefur komið fram í öllum helstu tónleikahöllum heims og leikið með fremstu hljómsveitum, m.a. undir stjórn Vladimirs Ashkenazy sem hefur verið dyggur stuðningsmaður hans um árabil. Mynddiskur með tónleikum Nobus í Carnegie Hall árið 2012 var valinn diskur mánaðarins hjá hinu virta tímariti Gramophone og hann hefur auk þess hljóðritað mikinn fjölda hljómdiska sem náð hafa metsölu í heimalandi hans. 

Vladimir Ashkenazy, hljómsveitarstjóri

Vladimir Ashkenazy er óumdeilanlega frægastur íslenskra ríkisborgara í klassíska tónlistarheiminum. Í ríflega hálfa öld hefur hann verið í hópi fremstu hljóðfæraleikara, eða allt frá því hann komst á verðlaunapall í þremur virtustu tónlistarkeppnum heims – hann hlaut önnur verðlaun í Chopin-keppninni í Varsjá árið 1955 og fyrstu verðlaun bæði í Queen Elisabeth-keppninni í Brüssel 1956 og Tsjajkovskíj-keppninni í Moskvu 1962.

Ashkenazy á einnig að baki glæsilegan feril í hljóðverinu og hefur hljóðritað flest höfuðverk píanóbókmenntanna. Ashkenazy hefur hlotið sex Grammy-verðlaun, m.a. sem besti einleikari með hljómsveit (píanókonsertar Beethovens með Georg Solti, 1974), fyrir bestu kammerhljóðritun (fiðlusónötur Beethovens með Itzhak Perlman, 1979), og besta einleiksdisk (prelúdíur og fúgur Shostakovitsj, 2000). 

Undanfarna áratugi hefur orðstír Ashkenazys sem hljómsveitarstjóra vaxið stöðugt, allt frá því að hann steig sín fyrstu skref á þeirri braut með Sinfóníu-hljómsveit Íslands árið 1972. Hann hefur verið aðalstjórnandi hjá virtum hljómsveitum á borð við Konunglegu fílharmóníusveitina í London, Tékknesku fílharmóníusveitina og Sinfóníuhljómsveitarinnar í Sidney í Ástralíu, en hann hefur auk þess starfað með flestum frægustu hljómsveitum heims sem gestastjórnandi. 

Vladimir Ashkenazy er aðalheiðursstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Efnisskráin

Á tónleikaferðalaginu verða tvær efnisskrár sem verða leiknar til skiptis. Annarsvegar flytur hljómsveitin píanókonsert nr. 2 eftir Rakhmaínov og sinfóníu nr. 2 eftir Sibelius. Hin efnisskráin samanstendur af píanókonserti nr. 2 eftir Chopin og sinfóníu nr. 2 eftir Rakhmanínoff. Á báðum efnisskránum hljómar Jökulljóð eftir Þorkel Sigurbjörnsson.

Hér má hlusta á verkin sem flutt verða á tónleikaferðalaginu: