EN

5. maí 2019

Aðalfundur Vinafélagsins

Aðalfundur Vinafélags Sinfóníuhljómsveitar Íslands verður haldinn á veitingastaðnum Bergmáli í Hörpu fimmtudaginn 23. maí 2019 kl. 16. Allir eru velkomnir og eru þeir sem vilja taka virkan þátt í starfi félagsins hvattir til að mæta.

Vinafélagið er öflugt bakland hljómsveitarinnar og stendur fyrir tónleikakynningum og fyrirlestrum um sígilda tónlist ásamt því að styðja fjárhagslega við ákveðin verkefni tengd hljómsveitinni. Hægt er að skrá sig í Vinafélagið á vef hljómsveitarinnar og er árgjaldið 3.500 krónur.