EN

2. júní 2023

Ásgeir Trausti og Sinfó 2. nóvember í samstarfi við Iceland Airwaves

Almenn miðasala hefst 8. júní

Ásgeir Trausti og Sinfóníuhljómsveit Íslands sameina krafta sína á tónleikum í Eldborg á systurviðburði (Partner Event) á Iceland Airwaves þar sem hljóma munu mörg af þekktustu lögum Ásgeirs í glæsilegum útsetningum fyrir fullskipaða sinfóníuhljómsveit. Með þessu einstaka samstarfi gefst aðdáendum bæði sinfónískrar tónlistar og tónlistar Ásgeirs Trausta tækifæri til að upplifa hrífandi samruna ólíkra tónlistarstefna. Hljómsveitarstjóri er Anthony Weeden. Almenn miðasala á tónleikana hefst 8. júní kl. 10.00 á sinfonia.is, icelandairwaves.is og harpa.is.

Ásgeir Trausti hefur verið með vinsælustu tónlistarmönnum landsins síðan fyrsta plata hans, Dýrð í dauðaþögn, kom út árið 2012. Platan sló öll íslensk sölumet og ensk útgáfa hennar sem út kom tveimur árum síðar náði inn á vinsælda­ lista víða um lönd. Síðan hefur Ásgeir gefið út þrjár breið­skífur sem náð hafa miklum vinsældum og hlotið fjölda verðlauna. Nú um stundir ferðast Ásgeir um heiminn til þess að fylgja eftir fjórðu breiðskífunni, Time on my Hands, sem kom í október 2022, og hefur leið hans meðal annars legið um Evrópu, Bandaríkin, Ástralíu, Nýja ­Sjáland og Japan.

Með tónleikunum endurvekur Sinfóníuhljómsveit Íslands samstarf sitt við tónlistarhátíðina Iceland Airwaves en stefnt er að því að hljómsveitin verði árlega á dagskrá hátíðarinnar. Áður hefur Sinfó meðal annars tekið þátt í Iceland Airwaves á tónleikum með John Grant, Jóhanni Jóhannssyni, Emilíönu Torrini og Ólafi Arnalds.

IA PARTNER EVENT
Forgangur og afsláttur fyrir Iceland Airwaves miðahafa og áskrifendur Sinfóníuhljómsveitar Íslands.