EN

8. mars 2017

Bein útsending frá tónleikum með Paul Lewis á fimmtudaginn 9. mars

Tónleikum Sinfóníunnar verður streymt í beinni útsendingu hér á vef hljómsveitarinnar annað kvöld. Á tónleikunum leikur enski verðlaunapíanistinn Paul Lewis annan og þriðja píanókonsert Beethovens auk þess sem hljómsveitin mun flytja Kraftaverkssinfóníuna eftir Joseph Haydn. 

Streymið hefst kl. 19:30 hér á vef Sinfóníunnar.