EN

30. september 2021

Strauss og Shostakovits í nýju Hlaðvarpi Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur farið af stað með nýtt hlaðvarp og verður það í vetur helgað grænu tónleikaröðinni. Halla Oddný Magnúsdóttir hefur umsjón með hlaðvarpinu.

Í þessum fyrsta þætti Hlaðvarps Sinfóníuhljómsveitar Íslands spjallar Halla Oddný Magnúsdóttir við Árna Heimi Ingólfsson tónlistarfræðing um verkin á efnisskrá fyrstu tónleika grænu raðarinnar í vetur, sem bera yfirskriftina Strauss og Shostakovits.

Verkin sem fjallað er um:

Richard Strauss Hornkonsert nr. 1
Dmítríj Shostakovitsj Píanókonsert nr. 2
Richard Strauss Don Juan

Tónleikarnir fara fram í Eldborg og í beinni sjónvarpsútsendingu á RÚV  miðvikudaginn 6. október 2021 kl. 20.00

Smelltu hér til að hlusta á hlaðvarpið