EN

5. desember 2022

Jólagleði Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur í sína árlegu jólaferð um borg og bý fimmtudaginn 8. desember næstkomandi. Hljómsveitin heimsækir heimilsfólk á Hrafnistu á Laugarási kl. 10:30 og þaðan er förinni heitið á Landspítalann við Hringbraut þar sem leikið verður í K-byggingunni kl. 13:00. Hljómsveitin flytur fallega jóladagskrá sem kemur öllum í sannkallað hátíðarskap.