EN

1. september 2017

Klassíkin okkar í beinni sjónvarpsútsendingu 

Í kvöld mun úrvalslið íslenskra söngvara flytja eftirlætis óperuaríur landsmanna. Þóra Einarsdóttir, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Dísella Lárusdóttir, Hallveig Rúnarsdóttir, Suzanne Fischer, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, Hildigunnur Einarsdóttir, Elmar Gilbertsson, Ólafur Kjartan Sigurðarson og Kristinn Sigmundsson koma fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt Kór Íslensku óperunnar, Óperukórnum í Reykjavík og Karlakór Kópavogs. Hljómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason. 

Tónleikarnir verða í beinni sjónvarpsútsendingu á RÚV kl. 20:00 en ennþá eru örfá sæti laus á þessa sannkölluðu óperuveislu.