EN

18. maí 2021

Kosning hafin í Klassíkin okkar

Hvert er eftirlætis íslenska leikhúslagið þitt?

Undanfarin fimm ár hafa Sinfóníuhljómsveit Íslands og RÚV efnt til glæsilegra tónleika undir yfirskriftinni Klassíkin okkar sem hafa notið mikilla vinsælda. Þann 3. september verða sjöttu tónleikarnir með þessari yfirskrift haldnir í Hörpu og að þessu sinni verður athyglinni beint að leikhústónlist, í samstarfi við Þjóðleikhúsið. 

Af því tilefni er efnt til kosningar um vinsælasta lagið úr íslenskri leiksýningu gegnum árin. Vitaskuld er af mörgu að taka en heyra má nokkur dæmi hér að neðan, úr sýningum allt frá frumkvöðlaárum íslensks leikhúss og til allra síðustu ára:

 

Hægt er að velja 1-5 lög af lista á www.ruv.is/klassikin. Lagið sem ber sigur úr býtum hljómar í beinni útsendingu úr Hörpu þann 3. september í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands og ýmissa tónlistarmanna. Kosningin stendur til 15. júní. Athugið að einnig er hægt að bæta við tillögum að eigin vali enda er listinn langt frá því að vera tæmandi.

Smelltu hér til að velja eftirlætis íslenska leikhúslagið þitt.