EN

21. júní 2021

Laus staða leiðara í flautudeild

Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir lausa til umsóknar stöðu leiðara í flautudeild hljómsveitarinnar. Umsóknarfrestur er til 12. júlí og verður hæfnispróf haldið 8. september 2021 í Hörpu.

Einleiksverk:

  1. Mozart flautukonsert í G-dúr, 1. kafli með kadensu
  2. Ibert flautukonsert, 2. og 3. kafli
  3. Verk að eigin vali

Hljómsveitarpartar verða aðgengilegir þátttakendum að minnsta kosti tveimur vikum fyrir hæfnisprófdag. Þátttakendur fá senda á rafrænu formi hljómsveitarparta ásamt nánari upplýsingum um staðsetningu.

Umsóknir

Umsóknarfrestur er til 12. júlí 2021. Umsóknir, ásamt ferilskrá og fylgiskjölum, skulu berast til Unu Eyþórsdóttur, mannauðsstjóra (starf@sinfonia.is).

Metið verður hverjum verður boðið til þátttöku og verður þeim sent boð skömmu eftir að umsóknarfrestur er liðinn svo fremi sem þeir hafi háskólamenntun í hljóðfæraleik. Umsóknarfrestur kann að verða framlengdur. Öllum umsóknum verður svarað.

Um starfið

Um er að ræða 100% starfshlutfall sem flautuleikari hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags SÍ og fjármálaráðherra. Gert er ráð fyrir að ráðið verði í stöðuna í haust 2021. Aðilar utan EES svæðis athugið að sækja þarf um atvinnuleyfi sem háð er samþykki FÍH (Félag íslenskra hljómlistarmanna) og Útlendingastofnunar.

Nánari upplýsingar veitir mannauðsstjóri Una Eyþórsdóttir (starf@sinfonia.is) í síma 8985017.

Lausar stöður hjá hljómsveitinni.