Laus staða víóluleikara
Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir til umsóknar lausa stöðu víóluleikara.
Hæfnispróf fer fram 25. febrúar 2025 í Hörpu.
Einleiksverk:
- Fyrsti kafli úr víólukonsert í D-dúr eftir F.A. Hoffmeister eða C. Stamitz í D-dúr með kadensu.
- Fyrsti kafli úr víólukonsert eftir B. Bartok eða W. Walton.
- Einn sólókafli að eigin vali eftir J.S. Bach.
Hljómsveitarpartar
Hljómsveitarpartar og nánari upplýsingar um hljómsveitarstaði verða sendar þátttakendum á rafrænu formi þegar umsókn hefur verið samþykkt, ásamt nánari upplýsingum um stað- og tímasetningu hæfnisprófs.
Umsóknarfrestur er til 13. desember 2024. Ekki er þörf á að fylla út umsóknareyðublað, nægilegt er að sækja um með því að senda tölvupóst, ásamt ferilskrá og prófskírteinum, til mannauðsstjóra á tölvupóstfangið starf@sinfonia.is.
Um starfið
Um er að ræða 100% starf víóluleikara hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands en samtals er gert ráð fyrir ellefu víóluleikurum hjá hljómsveitinni. Gerð er krafa um háskólamenntun í hljóðfæraleik. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Sinfóníuhljómsveitar Íslands og fjármálaráðherra. Aðilar utan EES svæðis þurfa að sækja um atvinnuleyfi sem háð er samþykki Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og Útlendingastofnunar.
Um hljómsveitina
Sinfóníuhljómsveit Íslands er þjóðarhljómsveit og var stofnuð árið 1950. Stöður fastráðinna hljóðfæraleikara eru 87. Hljómsveitin hefur um árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum og hefur fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis. Hljómsveitin heldur um 100 tónleika á hverju starfsári, m.a. áskriftartónleika með heimsþekktum stjórnendum og einleikurum. Við erum stolt af metnaðarfullu fræðslustarfi en árlega sækja þúsundir nemenda á öllum aldri hljómsveitina heim. Þá stendur hljómsveitin einnig fyrir margvíslegum fræðsluverkefnum til að leiða tónlistarnema inn í heim atvinnufólks. Eva Ollikainen hefur verið aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi hljómsveitarinnar frá árinu 2020. Heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands er Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsvæði Sinfóníuhljómsveitar Íslands, www.sinfonia.is og hjá mannauðsstjóra, starf@sinfonia.is, (sími 891 9141).