EN

18. febrúar 2020

Lausar stöður í hljómsveit

Staða uppfærslumanns í víóludeild og staða sellóleikara lausar til umsókar

Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir lausa til umsóknar stöðu uppfærslumanns í víóludeild og stöðu sellóleikara frá og með ágúst 2020. Umsóknarfrestur er til 15. mars 2020. 

 

Staða uppfærslumanns í víóludeild

Hæfnispróf verður haldið 11. maí 2020 í Hörpu.

Einleiksverk:

1. 1. kafli úr klassískum konsert eftir Hoffmeister (D-dúr) eða Stamitz (D-dúr) með kadensu.

2. 1.kafli úr konsert eftir Bartok eða Walton eða Hindemith Der Schwanendreher.

3. Einn kafli úr sólóverki eftir Bach, Reger eða Hindemith.

Hljómsveitarpartar verða aðgengilegir þátttakendum að minnsta kosti tveimur vikum fyrir hæfnispróf. Þátttakendur fá senda hljómsveitarparta á rafrænu formi og nánari upplýsingar um staðsetningu.

Umsóknir 

Umsóknarfrestur er til 15. mars 2020. Umsóknir, ásamt ferilskrá og fylgiskjölum, skulu berast til Unu Eyþórsdóttur (starf@sinfonia.is).

Metið verður hverjum verður boðið til þátttöku og verður þeim sent boð skömmu eftir að umsóknarfrestur er liðinn svo fremi sem þeir hafi háskólamenntun í hljóðfæraleik. Umsóknarfrestur kann að verða framlengdur. Öllum umsóknum verður svarað.

Um starfið

Um er að ræða 100% starfshlutfall sem uppfærslumaður í víóludeild hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags SÍ og fjármálaráðherra. Gert er ráð fyrir að ráðið verði í stöðuna haustið 2020. Aðilar utan EES svæðis athugið að sækja þarf um atvinnuleyfi sem háð er samþykki FÍH (Félag íslenskra hljómlistarmanna) og Útlendingastofnunar.

Nánari upplýsingar veitir mannauðsstjóri Una Eyþórsdóttir (starf@sinfonia.is) í síma 8985017

 

Staða sellóleikara

Hæfnispróf verður haldið 13. maí 2020 í Hörpu.

Einleiksverk:

1. Fyrsti kafli úr Haydn sellókonsert í D-dúr með kadensu.

2. Fyrsti kafli úr rómantískum konsert að eigin vali.

Hljómsveitarpartar verða aðgengilegir þátttakendum að minnsta kosti tveimur vikum fyrir hæfnisprófdag. Þátttakendur fá senda á rafrænu formi hljómsveitarparta ásamt nánari upplýsingum um staðsetningu.

Umsóknir

Umsóknarfrestur er til 15. mars 2020. Umsóknir, ásamt ferilskrá og fylgiskjölum, skulu berast til Unu Eyþórsdóttur , mannauðsstjóra (starf@sinfonia.is).

Metið verður hverjum verður boðið til þátttöku og verður þeim sent boð skömmu eftir að umsóknarfrestur er liðinn svo fremi sem þeir hafi háskólamenntun í hljóðfæraleik. Umsóknarfrestur kann að verða framlengdur. Öllum umsóknum verður svarað.

Um starfið

Um er að ræða 100% starfshlutfall sem sellóleikari hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags SÍ og fjármálaráðherra. Gert er ráð fyrir að ráðið verði í stöðuna haustið 2020. Aðilar utan EES svæðis athugið að sækja þarf um atvinnuleyfi sem háð er samþykki FÍH (Félag íslenskra hljómlistarmanna) og Útlendingastofnunar.

  

Nánari upplýsingar veitir mannauðsstjóri Una Eyþórsdóttir (starf@sinfonia.is) í síma 8985017.