EN

10. febrúar 2016

Hljómsveitarnámskeið Sinfóníuhljómsveitar Íslands: Ungsveitin

Hljómsveitarnámskeið Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2016 stendur frá 29. ágúst til 25. september. Að þessu sinni verður verkefni hljómsveitarinnar sinfónía nr. 5 eftir Tsjajkovskíj. 

Hljómsveitarstjórinn Eivind Aadland, sem er vinsæll fastagestur hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands og einn kunnasti hljómsveitarstjóri Noregs, stjórnar Ungsveitinni nú í annað sinn. Hljómsveitarnámskeiðinu lýkur með glæsilegum tónleikum í Hörpu, 25. september kl. 17:00.

Prufuspil Ungsveitar SÍ 2016 verða haldin þriðjudaginn 19. apríl í Hörpu. (ATH: Ekki er tekið inn í trompetdeild Ungsveitarinnar í ár.

Allir nemendur sem óska eftir að leika með Ungsveitinni þurfa að sækja um og standast prufuspil. Umsóknareyðublað má finna hér að neðan.

Umsóknarfrestur er til miðnættis 1. apríl. 

Umsækjendur fá staðfestingu á að umsókn hafi verið móttekin. Prufuspilspartar verða sendir út til nemenda í tölvupósti þegar umsókn hefur borist en prufuspilstímar verða sendir öllum umsækjendum eftir að umsóknarfrestur rennur út. 

Sérstök prufuspil verða haldin um stöðu konsertmeistara sem fara fram þriðjudaginn 19. apríl. Hver umsækjandi þarf að leika fyrsta þátt úr fiðlukonsert nr. 3, 4 eða 5 eftir W.A. Mozart, ásamt kadenzu. Leikið er án píanómeðleiks.

Þeir sem ekki geta mætt í prufuspilið er bent á að senda inn myndbandsupptöku með hljóði í góðum gæðum á neðangreint netfang. Ekki er hægt að sækja um konsertmeistarastöðu með innsendu myndbandi. Dómnefnd getur hins vegar farið fram á að hljóðfæraleikari sem sendir inn myndband verði látin leika um sæti innan sinnar deildar að hausti. 

Nemendum sem standast prufuspil verður boðið sæti í Ungsveit SÍ 2016 og þurfa þeir að greiða 10.000 kr. skráningargjald sem er óafturkræft við upphaf námskeiðsins.

Athugið að Ungsveit SÍ er aðallega hugsuð sem vettvangur fyrir samspil nemenda sem lokið hafa miðprófi hið minnsta. Mikil samkeppni er um sæti í Ungsveitinni og þess vegna er lykilatriði að koma vel undirbúinn til leiks. 


Nánari upplýsingar:
Hjördís Ástráðsdóttir, fræðslustjóri 
sími 5452504/8988934, netfang hjordis@sinfonia.is

Umsókn