15. apríl 2003
Meistaraverk Brittens undir stjórn Ashkenazy
Hörmungar stríðs eru sjálfsagt mörgum ofarlega í huga um þessar mundir. Ekki síst þegar saklaus fórnarlömb vopnaskaks birtast okkur á skjánum nánast daglega, menn konur, og því miður, börn. Benjamin Britten samdi verkið War Requiem, sem flutt verður á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands 9. og 10. maí, að beiðni kirkjuyfirvalda í Coventry vegna vígslu nýrrar dómkirkju þar í bæ. Sú gamla var nánast jöfnuð við jörðu í seinni heimsstyrjöldinni +++líkt og flestar af þeim rúmlega 1000 byggingum sem prýddu gamla bæinn í Coventry. Ashkenazy, heiðursstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, stýrir flutningi verksins en nærvera hans er alltaf gleðiefni fyrir alla, hljómsveitina sem og áhorfendur. Í verkinu er að finna texta eftir velska skáldið Wilfred Owen sem lést á vígvellinum í október 1918, aðeins 4 dögum áður en samið var um frið og fyrri heimsstyrjöldinni lauk. Þar yrkir hann um tilgangsleysi stríðsins og þær hörmungar sem hann hafði upplifað á vígvellinum. Einsöngvarar á tónleikunum eru þau Markus Brück, baritón frá Þýskalandi, Peter Auty, tenór frá Englandi og Marina Shaguch, sópran frá Rússlandi. Tveir kórar taka einnig þátt í flutningi verksins en það er Kór íslensku óperunnar og unglingakór Söngskólans í Reykjavík. Stjórnandi kóranna er Garðar Cortes. „Yrkisefni mitt er stríðið og harmur stríðsins. Allt sem skáldið getur gert í dag er að vara við. Þess vegna verða sönn skáld að segja sannleikann“. Wilfred Owen "Stríðssálumessa Brittens er meistaraverk sem krefur hlustandann um afstöðu; harkaleg lýsing á miskunnarlausri grimmd mannskepnunnar ekki síður en Guernica Picassos." Árni Heimir Ingólfsson (úr efnisskrá)