22. apríl 2003
Ashkenazy stýrir flutningi á meistaraverki
„Yrkisefni mitt er stríðið og harmur stríðsins. Allt sem skáldið getur gert í dag er að vara við. Þess vegna verða sönn skáld að segja sannleikann“. Wilfred Owen Hörmungar stríðs eru sjálfsagt mörgum ofarlega í huga um þessar mundir. Ekki síst þegar saklaus fórnarlömb stríðsátaka birtast okkur stöðugt á skjánum; menn, konur, og því miður, börn. Það er því ef til vill við hæfi að næsta verkefni Sinfóníuhljómsveitar Íslands sé flutningur á verki sem samið er í skugga tveggja heimsstyrjalda,+++ af manni sem upplifði átök seinni heimsstyrjaldarinnar og nýtti sér ljóð annars manns sem lést í þeirri fyrri. Vladimir Ashkenazy, heiðursstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, stýrir flutningi verksins en nærvera hans er alltaf gleðiefni fyrir alla, hljómsveitina sem og áheyrendur. +++ War Requiem eftir Benjamin Britten frá árinu1962 verður flutt á tónleikum í Háskólabíó þann 9. maí, sama dag og síðari heimsstyrjöldinni lauk árið 1945. Verkið samdi Britten að beiðni kirkjuyfirvalda í Coventry vegna vígslu nýrrar dómkirkju þar í bæ. Sú gamla var nánast jöfnuð við jörðu í seinni heimsstyrjöldinni líkt og flestar af þeim tæplega 1000 byggingum sem prýddu gamla bæinn í Coventry. Við smíði verksins hafði Britten í huga einsöngvara frá þremur löndum, fulltrúa hinna fyrrum stríðandi fylkinga í heimsstyrjöldinni síðari. Í Sálumessunni notar Britten hinn hefðbundna kaþólska texta en fellir einnig inn í hann níu ljóð eftir velska skáldið Wilfred Owen sem lést á vígvellinum í október 1918, aðeins fjórum dögum áður en samið var um frið og fyrri heimsstyrjöldinni lauk. Þar yrkir hann um tilgangsleysi stríðsins og þær hörmungar sem hann hafði upplifað á vígvellinum. Einsöngvarar á tónleikunum eru þau Marina Shaguch, sópran frá Rússlandi, Peter Auty, tenór frá Englandi og Markus Brück, baritón frá Þýskalandi. Tveir kórar taka einnig þátt í flutningi verksins en það eru Kór íslensku óperunnar og unglingakór Söngskólans í Reykjavík. Stjórnandi kóranna er Garðar Cortes. "Stríðssálumessa Brittens er meistaraverk sem krefur hlustandann um afstöðu; óvægin lýsing á miskunnarlausri grimmd mannskepnunnar ekki síður en Guernica Picassos." Árni Heimir Ingólfsson (úr efnisskrá)