EN

16. júní 2003

Miðasala á tónleika Diana Krall hafin

Miðasala er hafin hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleika Diana Krall sem haldnir verða þann 9. ágúst næstkomandi í Laugardalshöll. Rétt er að taka það fram að tónleikarnir tengjast ekki Sinfóníuhljómsveitinni á annan hátt en þann að miðar á tónleikana eru seldir í gegnum skrifstofu hljómsveitarinnar. Sinfóníuhljómsveitin mun ekki leika undir á tónleikunum en Diana Krall til halds og trausts verður 5 manna hljómsveit.