EN

19. júní 2003

Klassísk útvarpsstöð í loftið í júlí

Útvarp Mandólín 98,3 er klassísk útvarpsstöð sem mun hefja göngu sína nú í júlímánuði. Á dagskrá stöðvarinnar verða metnaðarfullir þættir, viðtöl og umfjallanir í bland við sígilda tóna. Sem dæmi um daglega og vikulega þætti verða tónskáld dagsins, fréttaskot, helstu stefnur, lönd, tímabil, hljóðfæri, þjóðlagatónlist, samruni klassískrar tónlistar og popptónlistar og tengsl tónlistar við aðrar listgreinar eins og kvikmyndir, myndlist, bókmenntir og dans. Áhugasamir geta litið inn á vefsíðu okkar www.mandolin.is eða sent okkur ábendingar og óskir á mandolin@mandolin.is.