EN

1. júlí 2003

Skrifstofa SÍ lokar vegna sumarleyfa

Skrifstofa SÍ verður lokuð vegna sumarleyfa til 8. ágúst næstkomandi. Áskrifendur mega vænta þess að fá ársbækling sendan í pósti strax eftir verslunarmannahelgi ásamt svarseðli sem þeir geta sent til baka sér að kostanaðarlausu. Kjörið er að nýta slíka sendingu til þess að koma á framfæri hugsanlegri breytingu á högum, svo sem búsetuskiptum. Starfsfólk Sinfóníuhljómsveitarinnar óskar öllum gleðilegra og sólríkra daga og þakkar fyrir ánægjulegt starfsár sem nú er að baki.